Back to search

Agricultural University of Iceland

Skellir: tillögur að hönnun almenningsgarðs í austurbæ Reykjavíkur

Abstract

dc:description.abstract

Í Lokaverkefni þessu til B.S prófs frá umhverfisskipulagsbraut við Landbúnaðarháskóla Íslands ætla ég að fara í gegnum þann feril sem fylgir því að hanna útivistarsvæði á afmörkuðum reit inni í borgarumhverfi. Svæðið sem um ræðir er tiltekinn deiliskipulagsreitur er kallast Ármannsreitur og er staðsettur í Túnunum í austurbæ Reykjavíkur. Markmið verkefnisins felst í því að hanna borgargarð á Ármannsreit og tengja stígakerfi umhverfisins inn í garðinn til þess að auka útivistarmöguleika íbúa í nærumhverfi sínu og styrkja tengsl hverfisins innbyrðis. Í hönnunarverkefni sem þessu eru greiningar ávallt einn viðamesti hluti verkefnisins enda undirstaða þess að hægt sé að skila góðri hönnun sem byggist á réttum forsendum. Í upphafi þarf því að skoða hvaða greiningar koma til með að nýtast í verkefninu og varð niðurstaðan sú að vinna veðurfar, skuggavarp, sögu, stöðu svæðisins, áætlaða notkun, rýmismyndun og SWOT eða Strengths, Weaknesses, Opportunities and Threats (styrkleiki, veikleiki, tækifæri og ógnir). Greiningarnar eru einna helst unnar á kortum, ljósmyndum og teikningum en einnig með vettvangsferðum um svæðið, samtölum og allri almennri upplýsingaöflun. Niðurstaða verkefnisins er sú að hanna almenningsgarð sem byggist á fengnum hönnunarforsendum og hugmyndafræði. Með því að styrkja megin tengsl við aðliggjandi svæði og með auknu aðgengi fyrir íbúa, verður svæðið eftirsóknarvert fyrir alla til útivistar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rannveig Heiðrún Guðbrandsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10826
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10826

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rannveig Heiðrún Guðbrandsdóttir 1977-. Skellir: tillögur að hönnun almenningsgarðs í austurbæ Reykjavíkur. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10826